Færsluflokkur: Löggæsla
Leiðsögumaður eða kaldur karl í krapinu?
18.2.2010 | 22:55
Sjálfur hef ég 15 ára reynslu af jöklinum, sagði Gylfi Sævarsson framkvæmdastjóri Vélsleðaleigunnar ehf. í Kastljósi í kvöld. Vélsleðaleigan skipulagði afdrifaríka vélsleðaferð á Langjökul á sunnudag þar sem skosk mæðgini urðu viðskila við hópinn í aftakaveðri og litlu sem engu skyggni.
Í Sjónvarpsfréttum í kvöld var sagt frá því að afar litlar kröfur eru gerðar til stofnenda fyrirtækja með vélsleðaferðir. Nær hver sem er getur stofnað afþreyingarfyrirtæki og farið með fólk í vélsleðaferðir á jökli. Sá hinn sami þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði;
· vera orðinn 20 ára
· vera lögráða
· hafa búsetu á Ísland
· hafa ekki hlotið dóm fyrir atvinnurekstur sl. fjögur ár.
Engar kröfur eru gerðar til viðkomandi um þekkingu á jöklum eða ferðum þangað.
Hver sem er getur kallað sig leiðsögumann
Fararstjórarnir þrír í umræddri ferð kalla sig leiðsögumenn án þess að hafa hlotið til þess menntun. Án þess að leggja dóm á hæfileika og reynslu fararstjóranna í viðkomandi ferð af jöklaferðum er mjög bagalegt þegar fólk ruglast á þessum starfsheitum því það hefur ítrekað komið óorði á fagmenntaða leiðsögumenn að ósekju.
Evrópustaðall gerir skýran greinarmun á starfsheiti fararstjóra og leiðsögumanna. Leiðsögumenn þurfa að ljúka sérhæfðu námi í leiðsögn um það svæði sem þeir leiðsegja á sem er viðurkennt af viðeigandi yfirvöldum. Fararstjórar þurfa enga menntun.
Nær 300 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leit á jöklinum. Fólkið fannst heilu og höldnu eftir um 8 klukkustundir frá því það varð viðskila við hópinn.
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)