Ókeypis flugfar til Íslands ein leið til að leysa gjaldeyrisskort

Hugmyndin:

Ríkið og Flugleiðir gera með sér samning um að bjóða erlendum ferðamönnum ókeypis flug til og frá Íslandi á lágönn.

Aðgerðaráætlun:

Ísland er auglýst sem ódýrt land á helstu markaðssvæðum okkar í fyrsta sinn í langan langan tíma sem mundi væntanlega eiða til aukinnar eftirspurnar.

Ferðamennirnir greiða skatta og umsýslugjöld af flugferðum til og frá Íslandi.

Ríkið greiðir Flugleiðum það sem uppá vantar.

Ferðamennirnir kaupa gistingu, mat, skoðunarferðir í rútum með leiðsögumönnum, vörur og ýmsa þjónustu á ótrúlega hagstæðum kjörum miðað við það sem áður var.

Starfsfólk Flugleiða fær nóg að gera á lágönn og rekstur fyrirtækisins er tryggður.

Starfsfólk í ferðaþjónustu á Íslandi fær nóg að gera á lágönn.

Hótelin standa undir afborgunum á lágönn.

Veitingahúsin fá nóg að gera á lágönn.

Tekjur:

Af þessu fær ríkissjóður bæði tekjuskatt frá starfsfólki í ferðaþjónustu og virðisaukaskatt af sölu vöru og þjónustu sem kæmi væntanlega með að standa undir samningnum við Flugleiði.

Aðgerðin mundi fyrst og fremst auka gjaldeyrisforðann en jafnframt slá á atvinnuleysi og auka tekjur ríkissjóðs.

Er þetta ekki rakið dæmi?

Fulla ferð!


mbl.is Icelandair kynnir nýtt farrými
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

snilldarhugmynd

Hólmdís Hjartardóttir, 3.10.2008 kl. 22:23

2 Smámynd: Jón Ragnar Björnsson

Bara tær snilld.

Blessaður komdu þessu á framfæri á réttum stöðum. Við þurfum fleiri svona frábærar hugmyndir. (Eru landsfeðurnir ekki að hamast við að segja okkur hvað við séum frááááábær)

Jón Ragnar Björnsson, 3.10.2008 kl. 22:46

3 identicon

Af hverju eru ekki alvöru menn með alvöru hugmyndir við völd i þessu landi eins og þú? Þetta er nákvæmlega það sem þarf TAKK FYRIR!

Einar Ingimarsson (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 23:50

4 Smámynd: Villi Asgeirsson

íst vel á þetta. Tær snilld!

Villi Asgeirsson, 4.10.2008 kl. 01:24

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Frábær pæling, það er nákvæmlega svona hugmyndaauðgi sem við þurfum mest á að halda núna. Bara ef þeir sem völdin hafa kynnu að hugsa svona "út fyrir rammann", við þurfum lausnir sem henta í nútímanum.

Önnur hugmynd sem kemur ekki frá mér sjálfum en var varpað  fram í tilefni af ótta sumra við mögulegan eldsneytisskort, er að byrja aftur að versla olíuvörur af Rússum og borga einfaldlega fyrir þær með fiski eins og tíðkastist fyrir nokkrum áratugum þegar erlendur gjaldeyrir var af skornum skammti. Það er ekki eins og þetta sé í fyrsta sinn í Íslandssögunni sem við höfum þurft að beita ýmsum ráðum til að þrauka á takmörkuðum gjaldeyrisforða.

Góðar stundir.

Guðmundur Ásgeirsson, 4.10.2008 kl. 21:55

6 Smámynd: Stefán Helgi Valsson

Takk fyrir góð viðbrögð við hugmyndinni um að bjóða erlendum ferðamönnum ókeypis til Íslands með það í huga að auka gjaldeyristekjur. Þeir sem hér hafa skrifað hafa e.t.v. áhuga á að lesa nýjustu færsluna á blogginu sem heitir "Iceland on sale".

Stefán Helgi Valsson, 14.10.2008 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband