Kannski verið að rugla saman tveimur hlutum
5.8.2009 | 13:54
Fjöldi gesta sem heimsækir lónið er á hreinu en hvernig í ósköpunum er hægt að vita nákvæmlega hversu margir Íslendingar eru í þeim hópi. Getur verið að talan 26 prósent eigi við um heildarfjölgun gesta en ekki um fjölgun Íslendinga sérstaklega? Það má vel vera vera að þessar tölur byggi á skotheldum gagnagrunni. Ef svo er þá þætti mér vænt um að það kæmi fram í fréttinni.
Fleiri Íslendingar í Bláa lónið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Stefán
Ég get staðfest það að þetta er ansi nákvæmt. Starfsfólk selur á mismunandi lykla í sölukerfinu og aðgreinir þetta þar. Auðvita getur Íslendingur keypt fyrir Útlendinga og öfugt en það er reynt að skrá þetta eins nákæmlega og hægt er.
kv, Hartmann
Hartmann (IP-tala skráð) 5.8.2009 kl. 15:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.