Færsluflokkur: Ferðalög
Riddarar Hallargarðarins riðu í gegnum Ráðhús Reykjavíkur
6.5.2008 | 14:37
Kapparnir Benedikt Erlingsson og Hilmir Snær Guðnason bættu um betur eftir að hafa áð í Hallargarðinum og riðu í gegnum Ráðhús Reykjavíkur til að undirstrika kröfur hollvinafélagsins.
![]() |
Óska eftir umræðu um Hallargarðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Leiðsögumenn velta fyrir sér hvor Mona Lisa komi til Íslands í sumar
6.5.2008 | 08:43
Leiðsögumenn velta því fyrir sér hvort skipið verði í siglingum í sumar enda hefur það vanið komur sínar til Íslands.
Ráðgert er að skipið komi til Reykjavíkur 9. júní og til Akureyrar daginn eftir.
Ferðaskrifstofan Atlantik sér um að taka á móti ferðamönnum af skipunu og skipuleggur skoðunarferðir með þýskumælandi leiðsögumönnum, setji strandið ekki strik í reikninginn.
Það er bagalegt þegar svona gerist en það er ekki útséð um hvort hægt verði að draga skipið af strandstað né hvort það missi af ferðinni til Íslands, segir Ólafía Sveinsdóttir hjá Atlantik. Skipið virðist ólaskað og hugsanlega verður hægt að draga það á flot þótt tilraunir í þá átt hafi misstekist til þessa. Við fáum að vita hverjar afleiðingar strandsins verða eftir viku til 10 daga, segir Ólafía.
Atlantik er ekki tryggt fyrir atburðum vegna force majeure. Ef skip kemst ekki inn vegna veðurs og þarf að sigla framhjá, eins og gerst hefur í september, höfum við borið það tjón, greitt leiðsögumönnum útkall samkvæmt kjarasamningi, bíleigendum og veitingastöðum.
Að sögn Ólafíu er þetta strand ekki einsdæmi því Maxim Gorki sigldi á ísjaka, Vista Mar strandaði og Hanseatic lenti í vandræðum áður en það kom til Íslands. Það sem er bagalegast er þegar skip dettur út og er bókað í margar ferðir til Íslands.
Samtals eru 984 um borð í skipinu sem skráð er á Bahamaeyjum. Ferðamennirnir um borð eru flestir þýskir og eru ekki taldir í hættu. Skipstjórinn er grískur.
Fólkið dvaldi um borð í nótt en er ekki talið í hættu enda fjögur önnur skip komin á svæðið.
Mona Lisa hallar örlítið en fólkið um borð er í góðu yfirlæti.
Skipið var á leið frá Kiel í Þýskalandi til Ríga í Lettlandi þegar það strandaði í um 200 kílómetra fjarlægð frá áfangastað.
Lesið fréttir á erlendum fréttasíðum og horfið á myndband frá slysstaðnum, smellið hér.
Stefán Helgi Valsson
Heimasíða Félags leiðsögumanna þar sem þessi grein birtist fyrst.
![]() |
Fólki bjargað af strandaðri ferju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 08:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hallargarðurinn er gott leiksvæði fyrir börn
6.5.2008 | 08:38
![]() |
Hilmir Snær og Benedikt ríða í bæinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 09:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Leiðsögumenn gríðarlega mikilvægir fyrir öryggi ferðamanna
30.4.2008 | 08:09
Sameiginlegt meginhlutverk allra leiðsögumanna er að tryggja eins og kostur er öryggi sitt og gesta. Í starfi gönguleiðsögumanna vegur þessi þáttur mjög þungt.
Leiðsögn, fræðsla, rötun, félagsskapur, skemmtun, túlkun, tenging við heimamenn og fleira er meðal þess sem leiðsögumenn gera.
![]() |
Leiðsögumaðurinn hvarf ofan í jökulsprungu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Einhver bið á raunfærnimati fyrir leiðsögumenn
24.4.2008 | 21:52
Raunfærnimat fyrir leiðsögumenn veltur á kostnaði og fjármagni en í dag er allt slíkt fjármagn eyrnamerkt ákveðnum hópum, segir Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri IÐUNNAR fræðsluseturs.
Ólíklegt er að fé fáist á þessu ári en hugsanlega á næsta ári þótt of snemmt sé að fullyrða um það. Niðurstaðan byggist á ákvörðun samningsaðila. IÐAN fræðslusetur sem er m.a. í eigu Samtaka atvinnurekenda í ferðaþjónustu (SAF) mundi, ef til kemur, þróa aðferðafræði raunfærnimats leiðsögumanna í samstarfi við Félag leiðsögumanna og Leiðsöguskóla Íslands.
FL og Leiðsöguskóli Íslands hafa lýst sig reiðubúin til samstarfs. Kröfur sem gerðar yrðu til raunfærnimatsins kæmu frá stjórn Félags leiðsögumanna. Almennt miðast raunfærnimat við einstaklinga sem eru 25 ára eða eldri. Raunfærnimatið felst m.a. í sjálfsmati einstaklingsins, gerð ferilmöppu, gátlista og viðtali með matsaðilum.
Hugsanlegt er að einstaklingur standist alla þætti raunfærnimatsins sem jafngildir lokaprófi frá viðurkenndri menntastofnun. Hins vegar er líklegt að viðkomandi þurfi að bæta við sig námi á ákveðnum sviðum og það viðbótarnám yrði í boði hjá Leiðsöguskóla Íslands. Hljóti raunfærnimat fyrir leiðsögumenn samþykki samningsaðila atvinnulífisins, sem fær fjármagn frá menntamálaráðuneytinu í tengslum við kjarasamninga, mun IÐAN koma til með að þróa aðferðafræðina vegna raunfærnimats leiðsögumanna.
Markmiðið með raunfærnimatinu er að fækka ófæglærðum á vinnumarkaði á næstu árum. Féð sem lagt er til þessa málaflokks er eyrnamerkt til þess að hjálpa einstaklingum sem flosnað hafa frá námi til þess að ljúka burtfararprófi eða sveinsprófi í löggiltum iðngreinum. Leiðsögunámið fellur sem stendur utan við þessa skilgreiningu, segir Hildur.
.
Þessi texti birtist fyrst 22.4.2008 á heimasíðu Félags leiðsögumanna.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nemendur frá Leiðsöguskólanum á fullri ferð á sumardaginn fyrsta
24.4.2008 | 21:44
Fimm nemendur frá Leiðsöguskóla Íslands, Pétur J. Jónasson, Sigurður G. Tómasson, Sigurður Óðinn Arnarsson, Sigurjón Njarðarson og Bryndís Marsibil Gísladóttir, leiðsögðu gestum í ferðum á vegum Höfuðborgarstofu á sumardaginn fyrsta.
Pétur leiðsagði í 4 tíma rútu- og gönguferð að Tröllafossi í Mosfellsdal, Sigurður G. gekk með gestum um Heiðmörk, Sigurður Óðinn leiðsagði gestum að Hellisheiðarvirkjun og Sigurjón og Bryndís leiðsögðu gestum um sögu eyjarinnar.
Sjálfur fór ég með fjölskyldunni að skoða Tröllafoss.
Sjá nánar á vefsíðu Félags leiðsögumanna
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Langvarandi verkfall í ferðaþjónustu í uppsiglingu
18.4.2008 | 22:18
Flugfreyjur, flugmenn og leiðsögumenn ferðamanna óska eftir hærri launum en tala fyrir daufum eyrum. Flugfreyjur og flugmenn eru tilbúnir að fara í verkfall og kannski leiðsögumenn.
Langvarandi verkfall í ferðaþjónustu getur verið í uppsiglingu. Ef allt fer á versta veg gæti farið svo að flugfreyjur fari í verkfall. Eftir einhvern tíma, þegar samið hefur verið við flugfreyjur, fara flugmenn í verkfall. Eftir einhvern tíma, þegar samið hefur verið við flugmenn, fara leiðsögumenn í verkfall.
Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum Félags leiðsögumanna (FL) og Samtaka atvinnurekenda í ferðaþjónustu (SAF). Málinu hefur verið vísað til ríkissáttasemjara og allsendis óvíst hvað kemur út úr þeim sáttaumleitunum.
![]() |
Flugfreyjur funda aftur á miðvikudag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt 19.4.2008 kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nær 60 nemendur útskrifast frá Leiðsöguskóla Íslands í maí 2008
15.4.2008 | 21:25
Útskrifaðir nemendur bætast í hóp rúmlega 1.000 fagmenntaðra leiðsögumanna sem útskrifast hafa frá Leiðsöguskóla Íslands.
Hringferð nemenda í almenna náminu fer fram 15-20. maí og æfingaferð gönguleiðsögumanna 15-19. maí. Nemendur búa yfir fjölbreyttum tungumálum að vanda, s.s. ensku, frönsku, ítölsku, þýsku, sænsku, dönsku, norsku, hollensku og rússnesku.
Útskrift leiðsögumanna verður í Digranesskirkju 22. maí klukkan 16:00-17:30.
Ólöf Ýrr Atladóttir nýskipaður ferðamálastjóri skrifar undir skírteini útskriftarnema í fyrsta sinn.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Náttúrutúlkun og landvarðaréttindi
15.4.2008 | 18:23
Á hverju vori auglýsir Umhverfisstofnun og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum eftir landvörðum til starfa. Umhverfisstofnun ræður landverði fyrir þjóðgarðana í Skaftafelli, í Jökulsárgljúfrum og á Snæfellsnesi auk fjölmargra friðlýstra svæða víðsvegar um landið.
Myndin er af nýjasta hópi landvarða sem lauk námi frá Umhverfisstofnun í mars 2008, ásamt leiðbeinendum. Ljósmyndina tók Birgir Örn Sigurðsson.
Dæmi um friðlýst svæði eru Askja, Dyrhólaey og Landmannalaugar.
Störfin eru eftirsótt en nemendur í ferðamáladeild Háskólans á Hólum sem ljúka fyrsta ári, og aðrir sem ljúka sérhæfðu 120 stunda námi frá Umhverfisstofnun, ganga fyrir um vinnu.
Fyrsta árs nemar í ferðamáladeild tóku þátt í staðlotu á Hólum 6-7. mars sl. í námskeiðinu Gönguferðir og leiðsögn. Yfirskrift staðlotunnar var náttúrutúlkun sem er einn mikilvægasti þáttur landvarðanámsins. En hvað er náttúru-túlkun?
Náttúrutúlkun er í raun ein af fjölmörgum samskiptanálgunum sem fagmenntaðir leiðsögumenn ferðamanna og landverðir beita dags daglega í störfum sínum.
Hugmyndin með náttúrutúlkun er að túlka náttúruna á þann hátt að gestir sem koma í heimsókn og njóta náttúrutúlkunar muni eftir heildarmyndinni í langan tíma fremur en einstökum atriðum í stuttan tíma.
Náttúrutúlkun er frábrugðin hefðbundinni kennslu. Í fyrsta lagi þurfa þátttakendur ekki að taka próf og í öðru lagi kemur náttúran og umhverfið í stað skólastofu. Sjáðu hér! eru algeng upphafsorð í náttúrutúlkun.
Náttúrutúlkun hentar landvörðum einkar vel sem samskiptanálgun vegna þess að þeir starfa við upplýsingamiðlun til fólks úti í náttúrunni.
Skipulagðar fræðslugöngur með landvörðum í þjóðgörðum á Íslandi er dæmi um aðstæður þar sem náttúrutúlkun er höfð að leiðarljósi. Náttúrutúlkun er einnig notuð á söguslóðum, í dýragörðum, á söfnum og víðar.
Meginmiðill náttúrutúlkunar er náttúran sjálf. Hugmyndafræðin á bak við náttúrutúlkun felst einkum í því að þeir sem stunda náttúrutúlkun, landverðir til dæmis, benda gestum á hið augljósa sem gerir gestunum kleift að tengja ákveðnar upplýsingar við aðra þætti sem saman mynda samstæða heild.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvers vegna fær Ólafur ekki að reisa foss í Reykjavík?
5.4.2008 | 20:52
Vatn er það sem einkennir Reykjavíkurborg umfram allt annað. Borgin er umlukin vatni. Borgin fær heitt vatn úr iðrum jarðar. Borgin fær hreint drykkjarvatn úr Gvendarbrunni. Laxveiðiá rennur um borgina og svo framvegis.
Vatn er vörumerki Reykjavíkur. Eigendur átöppunarverksmiðjunnar í nágrenni Þorlákshafnar í samvinnu við Reykjavíkurborg ættu að íhuga að styrkja Ólaf til góðra verka í borginni. Það mundi eflaust hafa gríðarlegt auglýsingagildi í för með sér fyrir fyrirtækið og undirstrika einkenni Reykjavíkurborgar gagnvart umheiminum ferðaþjónustunni til góða.
![]() |
Fossar rísa í New York |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)