Færsluflokkur: Ferðalög
Gríðarlegt ferðaþjónustutækifæri í uppsiglingu í Landeyjum
19.3.2008 | 01:45
Eftirfarandi greinarstúfur eftir mig birtist í Fréttablaðinu þriðjudaginn 18. mars 2008.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Stefán Helgi Valsson leiðsögumaður skrifar um ferðaþjónustu:
Tilkoma Landeyjahafnar við Bakka árið 2010 skapar nýtt og langþráð tækifæri í ferðaþjónustu á svæðinu. Í fyrsta sinn verður hægt að bjóða ferðamönnum í stutta en áhugaverða útsýnissiglingu um Vestmannaeyjar frá fastalandinu með lítilli fyrirhöfn.
Í skoðunarferð frá Landeyjahöfn um Vestmannaeyjar sjást Elliðaey, Bjarnarey, suðurhluti Heimaeyjar, Suðurey, Hellisey, Súlnasker og kóróna meistaraverksins sem er Surtsey. Þaðan er hægt að sigla aftur til Landeyja eða skjótast til Þrídranga með viðkomu á Heimaey þar sem gestum gæfist m.a. tækifæri til þess að litast um í væntanlegri gestastofu Surtseyjar.
Lundi er í öllum eyjunum á sumrin og í Súlnaskeri er næststærsta súlubyggð landsins. Líklega tæki ferð eins og hér er lýst um 3-4 klukkustundir sem er einkar heppileg tímalengd sé tillit tekið til þarfa fólks í skipulögðum hópferðum á leið umhverfis landið.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
National Geographic Magazine lýsir álvæðingunni á Íslandi
25.2.2008 | 02:18
Ég bendi á þessa fínu grein í marshefti National Geograpic sem heitir "Power Struggle". Reyndar er ég ekki alveg hlutlaus því ég leiðsagði Marguerite Del Giudice, höfundi greinarinnar, um Ísland í tvær vikur haustið 2006 þegar hún aflaði sér heimilda í greinina. Löngu síðar, nokkrum mánuðum fyrir birtingu, var mér falið að lesa greinina og yfirfara íslenska stafsetningu og staðreyndir.
Allur er varinn góður
As soon as you open your mouth, one observer said, theyre all over you. Its like living on a mobiledisturbing any part of it could generate a ripple throughout. So while Iceland in many ways remains an open and transparent society, theres an underlying guardedness among the people when it comes to talking politics and public policyconcerning such things as how the country should go about striking a balance between protecting its environment and growing its economy, which is more or less what this story is about.
Viðhorf til Reykvíkinga
They [the people from Reykjavik] want to come here in their Jeeps and have a look at the beautiful nature and the people too. And the people must be few and the more strange the better, says Smári Geirsson, a high school history teacher and onetime head of the 16-member association of eastern municipalities, shaking his bowed head.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gilda upplýsingalög eða ekki?
6.11.2007 | 09:41
Almenningur og blaðamenn fögnuðu tilkomu upplýsingalaganna. En svo virðist að ýmsar opinberar stofnanir eins og til dæmis Flugstöð Leifs Eiríkssonar þurfi ekki að veita upplýsingar til almennings á grundvelli þessara laga, og nú Orkuveita Reykjavíkur.
Mér finnst ótrúlegt að opinberar stofnanir komist upp með að neita almenningi um upplýsingar á grundvelli þess að einhver hluti stofnananna hefur verið seldur einkaaðilum, jafnvel bara eitt prósent!
![]() |
Launin þola ekki dagsljós |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kallað eftir fagmenntuðum leiðsögumönnum á landsbyggðinni
2.11.2007 | 11:25
Tryggja þarf aukið fjármagn til markaðsstarfs og virkja samtökin Cruise Iceland betur til að styrkja og efla innviði svo sem námskeiðahald vegna svæðisbundinnar leiðsagnar o.fl. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu nefndar á vegum samgönguráðuneytisins um móttöku skemmtiferðaskipa.
Í skýrslunni segir að vöxtur og viðgangur skipaferðamennsku sé fyrst og fremst að þakka tiltölulega fáum aðilum sem hafa haft sérstakann áhuga á verkefninu, m.a. leiðsögufólki. Fram kemur að á árunum 1992 til 2006 höfðu viðkomu í Reykjavíkurhöfn 111 skip alls 787 sinnum.Nefndin kvartar yfir því að erfitt sé að safna saman hópferðabílum til að taka á móti farþegaskipum og þurfi í sumum tilvikum að keyra bifreiðar á milli landshluta. Sama vandamál er hvað varðar leiðsögumenn, sérstaklega þegar óskað er eftir leiðsögn á öðru tungumáli en ensku.
Nefndin bendir á að fyrirsjáanlegt sé að fjölga þurfi hópferðabifreiðum og dreifa og jafna álagi með því að beina skemmtiferðaskipum inn á fleiri hafnir auk þess sem skoðunarferðir yrðu farnar á fleiri staði en nú er gert. Í því sambandi bendir nefndin á skort á salernum á sumum stöðum. Síðar í skýrslunni er fjallað sérstaklega um möguleika á því að nýta hafnir Fjarðarbyggðar, s.s. Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Mjóafirði og Stöðvarfirði.
Niðurstöður og tillögur Nefndin leggur til að aðilar í ferðaþjónustu komi á samvinnu við rekstraraðila skemmtiferðaskipa til að búa til fleiri valkosti sem bjóða bæði upp á náttúruskoðun og möguleika á að auka þekkingu á náttúruöflum, dýralífi og gróðurfari landsins með leiðsögn sérfræðinga. Ennfremur að leggja þurfi áherslu á að byggja upp leiðsöguþekkingu á hverju svæði fyrir sig. Formaður nefndarinnar var Gísli Gíslasson en aðrir í nefndinni voru Gunnar Rafn Birgisson, Helga Haraldsdóttir, Hörður Blöndal, Sigríður Finsen og Rúnar Guðjónsson starfsmaður samgönguráðuneytisins. Skýrslan er samtals 63 blaðsíður.
Nefnd um móttöku skemmtiferðaskipa. 25. október 2007.
-shv/ritnefnd 2.11.2007
Bætt aðstaða fyrir skemmtiferðaskip skapar aukin tækifæri, mbl.is, 2.11.2007
Þjónustuhús fyrir skemmtiferðaskip. Vefsíða FL, 13.4.2007
Aldrei fleiri skemmtiferðaskip. Vefsíða FL, 27.2.2007
Ljósmyndir af skemmtiferðaskipum við Skarfabakka eftir Kjartan Pétur Sigurðsson.
![]() |
Bætt aðstaða fyrir skemmtiferðaskip skapar aukin tækifæri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt 16.4.2008 kl. 08:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mannekla og gæði í háskólastarfi
24.10.2007 | 10:50
Svali H. Björgvinsson bendir á erfiðleika háskólanna að manna stöður á tímum manneklu á vinnumarkaði samfara mikilli fjölgun háskóla og háskólastúdenta og að þessir þættir komi niður á gæðum námsins.
Ég tek undir þetta með Svala og bendi á nýútkomna grein eftir Önnu Ólafsdóttur sem tengist umræðunni um gæði háskóla. Greinin heitir Change of agents in the contemporary university og fjallar um ýmsar áleitnar spurningar um gæði háskólakennslu út frá notkun upplýsingatækninnar.Lesið greinina á Netlu Kennaraháskólans, smellið hér
![]() |
Hætta á gæðalitlu námi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mikilvægt að öll sjónarmið vísindanna fái að heyrast
19.10.2007 | 08:23
Vissulega eru ummæli vísindamannsins ámælisverð og þau siðlaus í nútímasamfélagi. Hitt er annað mál hvort hann hafi rétt fyrir sér. Ekki ætla ég að skera úr um það, en dæmin sýna að vísindasamfélög hafa áður gert lítið úr "óvinsælum" kenningum vísindamanna. Gott dæmi um þetta er kenning A Wegener um landrekið sem 60 árum síðar var samþykkt af vísindasamfélaginu og skýrt flekakenningin.
![]() |
31 lést í ferjuslysi í Indónesíu |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sykurpúðaumfjöllun
3.10.2007 | 14:59
Frá hvaða landi eru þessir menn? Hvers konar sykurpúðaumfjöllun er þetta? Má ekki einu sinni segja frá því frá hvaða landi mennirnir eru? Látum það vera ef einn einstaklingur af erlendu bergi er grunaður um glæp. En þarna er um hóp manna að ræða sem liggur undir grun fyrir skipulagða glæpastarfsemi. Gleymum ekki að einn hinna grunuðu hefur áður hlotið dóm hér á landi og aðrir erlendis vegna svipaðra mála.
![]() |
Sjö til viðbótar handteknir vegna skipulagðra þjófnaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |